Ubbi í Mónakó – 2. hluti

Posted by Leikfélagið - in Fors, Uncategorized - No Comments

Nú er sveittur dagur á enda runninn og á morgun munu Ubbi kóngur, Ubba kerling og allt þeirra hyski stíga á stokk í Princess Grace leikhúsinu í Mónakó.

Ubbalingar á ferð og flugi

Hópurinn okkar sameinaðist seinnipartinn á sunnudag í höfuðstöðvum hátíðarinnar, Auditorium Rainier III.  Þar var haldin formleg móttaka og við boðin velkomin í hóp hinna landanna sem eiga fulltrúa á hátíðinni.  Þá fengum við einnig að vita að væntingar manna til uppsetningarinnar okkar væru miklar.  Við höfum heyrt það víða á síðustu dögum og erum því staðráðin í að standa okkur og slá í gegn.

Hópurinn boðinn velkominn

 

Dagskráin hjá okkur er þétt.  Á kvöldin eru leiksýningar frá kl. 18 til 22 og svo safnast þátttakendur saman í höfuðstöðvunum áður en hver heldur til síns heima.  Það var ekkert gefið eftir í því á sunnudagskvöld þó nýkomnu félagarnir væru örþreyttir, heldur rétt náðist að skutla töskum á hótelið og svo var brunað beint í leikhús.  Írarnir buðu svo uppá veitingar og skemmtiatriði á eftir.  Að því loknu buðu stórvinir okkar, Færeyingarnir Hilmar og Gunnvör Joensen og Noomi Reinert, okkur heim og við sungum um Ólaf liljurós fyrir Fransmenn.

Færeyingarnir frændur okkar

Á mánudagsmorgun var okkur boðið í móttöku borgarstjóra í Jardin Exotique, ásamt þátttakendum frá Írlandi, Mexikó og Víetnam.  Þar vorum við að reyna að vera pen og próper í 28 stiga hita og um það bil 80% raka.  Víetnamarnir voru einkar vel til fara.

Svo var stússað framundir það að leiksýningar kvöldsins byrjuðu, en flestir í hópnum kusu að sjá sýningar í leikhúsinu okkar, Princess Grace.  Fallegt og skemmtilegt hús sem lítur ekki út fyrir að vera stórt en sjálfur sýningarsalurinn er á mínus fjórðu hæð.  Það leggst vel í okkur að sýna í þessu húsi og við hlökkum til.

P.S.  Við erum með stórkostlega aðstoðarkonu hér, Geraldine, sem gerir allt fyrir okkur.  Hún sér líka um að borga fyrir okkur í strætó þegar hátíðarskutlubílstjórarnir eru vant viðlátnir.

 Fyrir hönd hópsins;

Ingveldur Lára Þórðardóttir

Comments are closed.

Pin It on Pinterest

Share This