Ekkert að Óttast sýnt í Þjóðleikhúsinu

Posted by Leikfélagið - in Fors, Sýningar - No Comments

Sýning Leikfélags Hafnarfjarðar, Ekkert að óttast var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2016 af valnefnd Þjöðleikhússins. Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði þann 7. maí sl.

Stefán Jóhennesson, gjaldkeri LH og Gísli Björn Heimisson formaður LH með Ara Matthíassyni Þjóðleikhússtjóra. Mynd: leiklist.is

Stefán Jóhennesson, gjaldkeri LH og Gísli Björn Heimisson formaður LH með Ara Matthíassyni Þjóðleikhússtjóra.
Mynd: leiklist.is

Ekkert að óttast (Gunnar á Leiðarenda) er gamanleikur eftir 12 höfunda úr höfundasmiðju LH. Leikritunarferlið tók um tvær vikur þar sem hver höfundur byrjaði á að skila inn einni persónu í persónubanka sem undirritaður skar síðan niður í sjö. Hver höfundur dró Tarot spil og saman mynduðu þau vísi að framvindu og áherslur sem reynt var að hafa til viðmiðs við skriftirnar. Dregið var um röð höfunda og í hvaða tímaröð þeir myndu skrifa. Hver höfundur hafði síðan 24 tíma til að skrifa sinn kafla í stykkið og sendi hann áfram á þann næsta í röðinni og svo koll af kolli. Út úr þessari vinnu fengum við handrit sem virkaði merkilega vel en sérvaldir höfundar úr hópnum eyddu síðan helgi við að umskrifa og samræma textann. Það var gert til að persónueinkenni héldu sér og eins til að fækka baksögum og slíkt.

Verkið fjallar um peninga, græðgi og svik, já og humar. En það fjallar líka um ást af ýmsum toga og það sem við erum tilbúin að gera eða ekki gera í nafni ástarinnar. Það fjallar um mikilvægi þess að hafa ást í hjartanu eða þykjast hafa ást í hjartanu. Að vera heiðarlegur og einbeittur og að horfast í þriðja augað við sig. Annars endar allt með ósköpum.

Comments are closed.

Pin It on Pinterest

Share This