Hið Ubbalega

Posted by Leikfélagið - in Fors, Sýningar - No Comments

Leikfélag Hafnarfjarðar blæs til stuttverkahátíðar í tilefni þess að sýning félagsins Ubbi kóngur – skrípaleikur í mörgum atriðum – í leikstjórn Ágústu Skúladóttur var valin til þátttöku á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Austurríki í sumar.

Stuttverkin eru innblásin af Ubba kóngi og höfundi hans, franska leikskáldinu Alfred Jarry. Áhorfendur mega því eiga von á ýmiskonar grodda, subbuskap og skrípalátum föstudaginn 20. maí, kl. 20.00, í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Aðeins verður sýnt einu sinni.

Gestgjafi kvöldsins er Ubba drottning. Hún mun, af sinni alkunnu alúð, gestrisni og gáfum, sjá áhorfendum fyrir andlegri næringu milli verka, ásamt ástkærum eiginmanni sínum og auðmjúkum þegnum og aðstoðarmönnum.

Aðgangseyrir er einn þúsundkall (fyrir hvern áhorfanda) sem rennur óskiptur í ferðasjóð Ubbalinga. Miðar seldir við innganginn.

 

Hin Ubbalegu leikrit eru:

Stund milli stríða e. Ólaf Þórðarson.

Leikstjóri: Gísli Björn Heimisson
Leikarar: Stefán H. Jóhannesson og Viðar Utley

 

Skugga-Sveinn group e. Karl Ágúst Úlfsson

Leikstjóri: Sigrún Tryggvadóttir
Leikarar: Eyvindur Karlsson og Gísli Björn Heimisson

 

Viltu nammi, hæna e. Gísla Björn Heimisson

Leikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson
Leikarar: Arndís Jóna Vigfúsdóttir, Ársæll Hjálmarsson, Kristín Svanhildur Helgadóttir og Stefán H. Jóhannesson

 

Samveran e. Ársæl Hjálmarsson

Leikstjóri: Ninna Karla Katrínardóttir
Leikarar: Arndís Jóna Vigfúsdóttir, Elva Dögg Gunnarsdóttir og Sigurveig Mjöll Tómasdóttir

 

Masterchef Ísland e. Ingveldi Láru Þórðardóttur

Leikstjóri: Eyvindur Karlsson
Leikarar: Aðalsteinn Jóhannesson, Elva Dögg Gunnarsdóttir, Huld Óskarsdóttir, Kristín Svanhildur Helgadóttir og Viðar Utley.

 

Ég, Ubbi e. Halldór Magnússon

Leikstjóri: Stefán H. Jóhannesson
Leikarar: Ársæll Hjálmarsson og Halldór Magnússon

 

ATHUGIÐ: Haldin verður fjáröflunarsýning á Ubba kóngi – skrípaleik í mörgum atriðum fimmtudaginn 26. maí. Nánar um það hér.

Comments are closed.

Pin It on Pinterest

Share This