Byrjendanámskeið í leiklist fyrir 18 ára og eldri

Posted by Leikfélagið - in Fors, Námskeið - No Comments

Mánudaginn 24. nóvember 2014 hefst leiklistarnámskeið hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar fyrir fullorðna. Þetta námskeið er ætlað byrjendum í leiklist og er öllum opið og að kostnaðarlausu. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Gísli Björn Heimisson, formaður LH og á námskeiðinu verður leitast við að kynna fyrir nemendum hin ýmsu form leiklistar. Þetta er kvöldnámskeið og spannar fjögur kvöld vikuna 24. – 27. nóvember.

Skráning á námskeiðið er á leikfelag@gmail.com

Athugið að takmarkaður fjöldi er á námskeiðinu.

Comments are closed.

Pin It on Pinterest

Share This