Leikfélagið hefur fengið leikstjórann Gunnar Björn Guðmundsson til að setja upp næsta verkefni LH. Fyrsta æfing verður í kvöld kl. 20:30. Allir félagar í Leikfélagi Hafnarfjarðar velkomnir. Mætið í fatnaði sem gott er að hreyfa sig í (helst ekki í háum hælum og galakjólum).
Félagar í Leikfélaginu teljast þeir sem greitt hafa félagsgjöldin (1.000 kr), upplýsingar um greiðslu félagsgjalda má finna hér.