Nú eru æfingar fyrir Hið vikulega komnar á fullt skrið og var það föngulegur hópur sem var mættur til æfingar núna kl 10 í morgun.
Vorverkefni Leikfélags Hafnarfjarðar samanstendur af fjórum leiksýningum sem allar bera nafnið Hið Vikulega. Hver leiksýning samanstandur af sjö til tíu nýjum, íslenskum stuttverkum sem þýðir að á innan við mánuði sýnum við á bilinu þrjátíu til fjörutíu ný stuttverk. Sýningar eru vikulega sem hér segir:
- Laugardaginn 22. mars kl. 20
- Laugardaginn 29. mars kl. 20
- Laugardaginn 5. apríl kl. 20
- Miðvikudaginn 16. apríl kl. 20 (daginn fyrir skírdag)