Nú á laugardaginn 29. ágúst er fram seinni hluti Hins vikulega. Viðtökurnar í síðustu viku voru frábærar og viljum við þakka öllum þeim sem komu kærlega fyrir komuna. Við vonumst að sjálfsögðu til að sjá ykkur sem flest aftur á laugardaginn.
Hið vikulega þessa vikuna hefur þemað Vitund – Awareness.
Þetta er fullorðins sýning þ.a. hún er bönnuð börnum.
Þetta er í annað sinn sem sýningin er bönnuð börnum og tókst virkilega vel til síðast og því hvetjum við alla til að kíkja í Gaflaraleikhúsið á laugardaginn.
Verkin eru:
Puntudagur, höfundur: Elín Eiríksdóttir
Grænland, höfundur: Ólafur Þórðarson
Heilög Jól, höfundur: Ingveldur Lára Þórðardóttir
Hildur, höfundur: Steinunn Þorsteinsdóttir
Kramdar dósir, höfundur: Sóley Ómarsdóttir
Smiðsraunir, höfundur: Ólafur Þórðarson
Pamela í Dallas, höfundur: Ársæll Hjálmarsson
Sagan, höfundur: Ársæll Hjálmarsson
Að venju verður frítt inn en sjoppan verðu opin til aðgestir geti keypt sér léttar veitingar.
Við viljum samt sem áður minna á að hægt er að skrá sig meðlim í LH og greiða 1000 kr. félagsgjald sem veitir frían aðgang að öllum sýningum hvers leikárs.
Allar nánari upplýsingar má finna hér.